patterns > Litli prins Ravelry Store
> BAX Barnagalli
BAX Barnagalli
Þessi galli er með sama fallega mynstrinu og aðrar uppskriftir í BAX-línunni. Fallegur og góður galli sem hentar í vagninn, gönguferðir, leikskólann og allt annað sem litlir krakkar gera þegar þau eru að uppgötva heiminn.
Gallinn er prjónaður ofanfrá og niður með útaukningum í mynstrinu á berusykki, fram og til baka þar til kemur að klofstykki en þá er tengt í hring. Skálmar eru prjónaðar hvor í sínu lagi og ermar einnig. Í lokin eru teknar upp lykkjur í kantinum til að gera tölulista og hann svo festur niður að neðanverðu.
Athugaðu að prjónastærð er gefin upp skv. því sem kemur fram á uppgefnu garni. Ef þú notar aðra tegund þá gætirðu þurft að breyta um prjónastærð, en einnig ef þín prjónfesta er önnur.
STÆRÐIR
Nýburar / 0-3 mán / 3-6 mán / 6-9 mán / 9-12 mán / 1-2 ára / 2-3 ára / 3-4 ára
UMMÁL BOLS
47 / 50 / 54 / 56 / 58 / 61 / 63 / 65 cm
GARN
Sandnes Duo eða það garn sem passar prjónafestunni.
150, 200, 200, 250, 250, 300, 300, 350 gr
Athugið að ef annað garn er valið getur það haft áhrif á stærð flíkurinnar auk þess sem magnið gæti breyst.
PRJÓNAR (miðað við uppgefið garn)
Hringprjónar, 40 eða 60 cm # 3,0 og 3,5 (sannreynið prjónfestu og breytið um prjónastærð ef þarf)
Sokkaprjónar # 3,0 og 3,5
PRJÓNAFESTA Í SLÉTTU PRJÓNI
22 L = 10 cm (sannreynið prjónfestu og breytið um prjónastærð ef þarf)
ANNAÐ SEM ÞARF AÐ HAFA VIÐ HÖNDINA
Nokkur prjónamerki
ca. 6-8 tölur
Skæri, nál
6448 projects
stashed 3495 times
- First published: December 2021
- Page created: December 3, 2021
- Last updated: July 16, 2024 …
- visits in the last 24 hours
- visitors right now