patterns > Sigurlaug Hauksdóttir's Ravelry Store
> Belgur
Belgur
Belgbuxur fyrir afhafnasamt fólk í stærðunum 1/3 - 6/9 og 12/18 mánaða.
Nostalgíubuxur með sniði sem ekki var óalgengt að sjá börn í um miðja seinustu öld. Þær fæddust kvöld eitt þegar verið var að skoða gamlar myndir.
Buxurnar eru prjónaðar í Kaos Organic Soft Merino, 50gr – 225 mtr. Í þær fóru 100 - 100 -150 gr.
Prjónaðar ofan frá og niður, með smekk, axlaböndum og skrefbót, og blúndu ef vill. Í minnstu buxunum var nægur afgangur af tveim dokkum til að prjóna litla húfu ef ekki var prjónuð blúnda. Í miðjustærðinni rétt dugðu tvær ef blúnda var prjónuð.
Allar stærðir hafa verið prufuprjónaðar. Ég þigg með þökkum allar ábendingar um villur í uppskriftinni og svara öllum fyrirspurnum hvort sem þær eru hér, á fb eða í netfanginu silla@grisara.is
565 projects
stashed 483 times
- First published: September 2023
- Page created: September 24, 2023
- Last updated: September 24, 2023 …
- visits in the last 24 hours
- visitors right now