Blika buxur by knit by Steinunn

Blika buxur

no longer available from 1 source show
Knitting
July 2020
Jord Clothing Woolly light
both are used in this pattern
DK (11 wpi) ?
28 stitches = 4 inches
US 1½ - 2.5 mm
US 2½ - 3.0 mm
US 4 - 3.5 mm
US 6 - 4.0 mm
361 - 547 yards (330 - 500 m)
0-3 mán / 3-6 mán / 6-9 mán / 9-12 mán / 1-2 ára / 3-4 ára
Icelandic
Out of print. This pattern was available for €6.70.

Þessar buxur eru tilvaldar í vagninn, innanundir pollagallann eða til að skoppa um í grasinu í útilegunni.
Þær eru prjónaðar úr mjúkri og hlýrri ull svo þær halda góðum hita á litlum kroppi án þess að vera fyrirferðamiklar eða heftandi. Þær eru því einstaklega hentugar þegar aðeins er farið að kólna í veðri eða sólin felur sig á bakvið skýjahulu.
Buxurnar eru prjónaðar í hring, ofan frá og niður með stuttum umferðum til að gera betra pláss fyrir rassinn. Skálmar eru prjónaðar hvor í sínu lagi. Munstur er niður eftir skálmum að utanverðu, og axlaböndin prjónast svo að lokum.

STÆRÐIR
0-3 mán / 3-6 mán / 6-9 mán
9-12 mán / 1-2 ára / 3-4 ára

UMMÁL
40 / 44 / 48 cm
50 / 52 / 58 cm

GARN
Woolly Light frá Jord Clothing 100 / 100 / 150 gr (fyrir minni stærðirnar þrjár)
Woolly frá Jord Clothing 150 / 200 / 250 gr (fyrir stærri stærðirnar þrjár)

Athugið að ef annað garn er valið getur það haft áhrif á stærð flíkurinnar auk þess sem magnið gæti breyst.

PRJÓNAR
Hringprjónar, 40 cm #2,5 og 3,0 / Sokkaprjónar #2,5 og 3,0
Hringprjónar, 40 cm #3,5 og 4,0 / Sokkaprjónar #3,5 og 4,0

PRJÓNAFESTA Í SLÉTTU PRJÓNI
28 L = 10 cm
22 L = 10 cm

ANNAÐ SEM ÞARF AÐ HAFA VIÐ HÖNDINA
Prjónamerki
2 tölur
Skæri, nál