Blómavettlingar by Gudlaug M. Juliusdottir

Blómavettlingar

Knitting
September 2019
Sport (12 wpi) ?
32 stitches = 4 inches
US 1 - 2.25 mm
109 - 164 yards (100 - 150 m)
one size
Icelandic
This pattern is available for $3.00 USD buy it now

Takk fyrir að kíkja á fínu Blómavettlingana mína! Ég hannaði þessa vettlinga um sumar og ósjálfrátt læddust blessuð blómin inn í hönnunina. Þeir eru fullkomnir fyrir íslenska sumarið eða veturinn, það fer alveg eftir garninu og litunum sem er valið hvort hentar betur. Blómavettlingarnir eru hannaðir eins og norsku Selbu vettlingarnir, með mynsturprjón í stað hefðbundins storffs við úlnlið, en að sjálfsögðu er hægt að gera venjulegt slétt/brugðið stroff í staðinn. Útaukningin fyrir þumalinn er í lófanum. Þetta mynstur kemur betur út ef það er prjónað frekar þétt þannig að ég notaði 2.25 mm prjóna til að ná áferðinni eins og ég vildi hafa hana.
Sýniseintökin eru annars vegar prjónuð með E+4 Einrúm (rauða og hvíta) og hins vegar Rauma Finull (bláa og hvíta) á hringprjón með langri snúru og magic loop aðferðinni en að sjálfsögðu er einnig hægt að nota sokkaprjóna.

Ummál: 20 cm
Prjónastærð: 2,25 mm eða sú stærð sem hentar til að ná réttri prjónafestu.

Garn: Sjá hér að ofan.
Litur A: 50 gr
Litur B: 50 gr.

Góða skemmtun!