patterns > Litli prins Ravelry Store
> Gráblika buxur
Gráblika buxur
Þessar buxur eru tilvaldar innanundir pollagallann eða til að skoppa um í grasinu í útilegunni. Þær eru prjónaðar úr mjúkri og hlýrri ull svo þær halda góðum hita á litlum kroppi án þess að vera fyrirferðamiklar eða heftandi. Þær eru því einstaklega hentugar þegar aðeins er farið að kólna í veðri eða sólin felur sig á bakvið skýjahulu.
Buxurnar eru prjónaðar í hring, ofan frá og niður með stuttum umferðum til að gera betra pláss fyrir rassinn. Skálmar eru prjónaðar hvor í sínu lagi. Munstur er niður eftir skálmum að utanverðu, og axlaböndin prjónast svo að lokum.
STÆRÐIR:
9-12 mán / 1-2 ára / 3-4 ára
UMMÁL
50, 52, 58 cm
GARN
Dale Lanolin eða það garn sem passar prjónafestunni.
150, 200, 250 gr
Athugið að ef annað garn er valið getur það haft áhrif á stærð flíkurinnar auk þess sem magnið gæti breyst.
PRJÓNAR
Hringprjónar, 40 cm # 3,5 og 4,0 Sokkaprjónar # 3,5 og 4,0
PRJÓNAFESTA Í SLÉTTU PRJÓNI
22 L = 10 cm
ANNAÐ SEM ÞARF AÐ HAFA VIÐ HÖNDINA
Prjónamerki
Skæri
Nál
2 tölur
688 projects
stashed 636 times
- First published: July 2020
- Page created: April 30, 2021
- Last updated: August 15, 2024 …
- visits in the last 24 hours
- visitors right now