Víkings vettlingar, barna by Kristin Ornolfsdottir

Víkings vettlingar, barna

Knitting
September 2024
DK (11 wpi) ?
22 stitches = 4 inches
in Röndótt
US 6 - 4.0 mm
US 7 - 4.5 mm
Icelandic
This pattern is available for $6.00 USD
buy it now or visit pattern website

Hlýjir, mjúkir og fljótprjónaðir vettlingar í Víkings litunum.
Virkilega góðir fyrir alla útiveru; sumar, vetur vor og haust.

STÆRÐIR
4-6 ára (7-9 ára) 10-12 ára
Yfirvídd: 16 cm (18 cm) 19 cm
Lengd belgs: 12.5 cm (14 cm) 16,5 cm

GARN
Super frá Icewear Garn eða álíka gróft garn.
Ein dokka er 50 g (100m/109yd).
Litur 1: #9012-0001, 1 dokka (1 dokka) 1 dokka
Litur 2: #9012-2026, 1 dokka (1 dokka) 1 dokka
Litur 3: #9012-1000, 1 dokka (1 dokka) 1 dokka. Einnig er hægt að nota afgangs garn í réttum lit.
Litur 4: #9012-9055, 1 dokka (1 dokka) 1 dokka. Einnig er hægt að nota afgangs garn í réttum lit.

PRJÓNAR
Sokkaprjónar nr. 4 og 4.5.

Prjónfesta er 22 lykkjur = 10 cm í einlitu prjóni á prjóna nr. 4.5.

Ath. Prjónastærðin er aðeins til viðmiðunar. Auðvelt er að gera vettlingana annað hvort minni eða stærri með því að nota örlítið minni eða stærri prjóna. Þeir sem prjóna fast ættu ekki að hika við að fara upp um ½ prjónastærð og þeir sem prjóna laust eða vilja hafa vettlingana þrengri geta notað minni prjónastærð. Einnig er auðvelt að lengja eða stytta vettlingana með því að hafa rendurnar lengri eða styttri. Einnig er hægt að lengja svarta hlutann efst á vettlingunum.