patterns > Icewear Garn Website and 1 more...
> Víkings vettlingar, fullorðins
Víkings vettlingar, fullorðins
Hlýjir, mjúkir og fljótprjónaðir vettlingar í Víkings litunum.
Virkilega góðir fyrir alla útiveru; sumar, vetur vor og haust.
Yfirvídd: 20 cm (22) cm
Lengd belgs: 19.5 cm (22) cm
GARN
Super frá Icewear Garn eða álíka gróft garn.
Ein dokka er 50 g (100m/109yd).
Litur 1: #9012-0001, 1 dokka (2 dokkur)
Litur 2: #9012-2026, 1 dokka (1 dokka).
Litur 3: #9012-1000, 1 dokka (1 dokka). Einnig er hægt að nota afgangs garn í réttum lit.
Litur 4: #9012-9055, 1 dokka (1 dokka). Einnig er hægt að nota afgangs garn í réttum lit.
Sokkaprjónar nr. 4 og 4.5.
Prjónfesta er 22 lykkjur = 10 cm í einlitu prjóni á prjóna nr. 4.5.
Ath. Prjónastærðin er aðeins til viðmiðunar. Auðvelt er að gera vettlingana annað hvort minni eða stærri með því að nota örlítið minni eða stærri prjóna. Þeir sem prjóna fast ættu ekki að hika við að fara upp um ½ prjónastærð og þeir sem prjóna laust eða vilja hafa vettlingana þrengri geta notað minni prjónastærð. Einnig er auðvelt að lengja eða stytta vettlingana með því að hafa rendurnar lengri eða styttri eða lengja svarta hlutann efst á vettlingunum.
- First published: September 2024
- Page created: September 7, 2024
- Last updated: September 7, 2024 …
- visits in the last 24 hours
- visitors right now