Sjöl og teppi - eins báðum megin er með á þriðja tug prjónauppskrifta að sjölum og barnateppum. Hér er lögð áhersla á að stykkið sé eins báðum megin, engin ranga, bara rétta - sem gerir það miklu notadrýgra og fallegra. Leitað er víða fanga við hönnunina, meðal annars í íslenskt handverk og til Hjatlandseyja. Hér eru uppskriftir við allra hæfi, allt frá einföldum og stuttum fyrir byrjendur upp í flóknari fyrir vana prjónara.